Eiður Smári fær hlýjar kveðjur: „Botninn getur verið frábær byrjunarpunktur á einhverju miklu betra“

Eiður Smári Guðjohnsen fær hlýjar kveðjur á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá því að starf hans væri í hættu sem þjálfari FH vegna meints ölvunaraksturs í vikunni.

Eiður Smári er einn besti – ef ekki sá besti – knattspyrnumaður í sögu þjóðarinnar og lék hann með liðum á borð við Chelsea og Barcelona við frábæran orðstír.

Áfengi getur komið fólki í klandur en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eiður Smári kemst í kastljósið vegna áfengisneyslu. Eins og frægt er orðið náðist myndband af honum ölvuðum í miðborginni þar sem hann kastaði af sér vatni utandyra. Þá var greint frá því að Eiður hafi virst vera undir áhrifum áfengis í þættinum Völlurinn í Sjónvarpi Símans í fyrra.

Eiður er í uppáhaldi hjá mörgum enda skemmtilegur karakter og fáir með jafn mikla þekkingu á fótbolta og hann. Hann fær hlýjar kveðjur frá fólki á samfélagsmiðlum sem reynir að stappa í hann stálinu.