Eiður Smári áminntur og fer í leyfi: „Ég mun svo sannarlega taka á mínum málum“

Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, hefur fengið skriflega áminningu frá KSÍ og fer nú í tímabundið leyfi frá störfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ en þar segir að Eiður muni snúa aftur af fullum krafti með landsliðinu í verkefnum haustsins.

„KSÍ lýsir yfir stuðningi við Eið Smára og hans ákvörðun um að leita sér hjálpar og óskar honum alls hins besta,“ segir í tilkynningunni en eins og fram hefur komið var Eiður myndaður í miðborg Reykjavíkur þar sem hann kastaði af sér vatni.

Eiður Smári segir í tilkynningunni að hann sé ekki fullkominn og taki stundum rangar ákvarðanir. Yfirlýsingu hans má lesa hér að neðan.

„Ábyrgðin liggur hjá mér.

Ég hef alla tíð reynt af bestu getu að uppfylla það að vera fyrirmynd.

Það hlutverk kom til mín og fylgdi sennilega velgengni minni á knattspyrnuvellinum.

Það að vera fyrirmynd þýðir ekki að ég sé fullkominn, ég er mannlegur. Stundum tökum við rangar ákvarðanir, sýnum af okkur dómgreindarleysi og gerum mistök, og þá sérstaklega þegar áfengi spilar inn í. Á lífsleið okkar þurfum við öll að taka á ýmsum persónulegum málum, og ég mun svo sannarlega taka á mínum.

Alltaf einn af ykkur, Eiður Smári.“