Egill vill að hætt verði að verðlauna fólk með flugpunktum

Egill Helgason fjölmiðlamaður vill að hætt verði að verðlauna fólk með flugpunktum. Egill gerir grein sem birtist á vef Guardian í dag að umtalsefni, en í henni kemur fram að fámennur hópur fólks beri ábyrgð á stærstum hluta þeirrar losunar sem er vegna flugs í heiminum.

„Flug er einstaklega skaðlegt fyrir loftslagið. Það er skammsýni hjá stjórnvöldum að dæla út peningum til að koma flugi aftur á sama stig og var fyrir kóvíð. Og það er minnihluti sem flýgur langmest, aftur og aftur, meðan stór hluti jarðarbúa flýgur sjaldan eða aldrei,“ segir Egill í færslu á Facebook í morgun.

„Í raun ætti ekki að verðlauna þetta fólk með flugpunktum og slíku – til að það fljúgi meira – heldur fremur leggja á það gjöld fyrir allt hið mengandi flug. Tek fram að ég er líklega í þessum hópi þótt liðið sé eitt og hálft ár síðan ég fór síðast til útlanda,“ segir Egill.

Grein Guardian er unnin upp úr skýrslu um þau lönd sem bera mesta ábyrgð á útblæstri gróðurhúsalofttegunda vegna flugs. Bent er á það að í Bandaríkjunum hafi 12% mannfjöldans tekið liðlega 66% allra flugferða og í Frakklandi beri 2% mannfjöldans ábyrgð á 50% allra flugferða.