Egill: Verða takmarkanir hertar núna? – „Tími kæruleysis á þrotum“

„Tími kæruleysis virðist vera á þrotum í bili – eins ógeðslega leiðinlegt og það nú er,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason í færslu á Facebook-síðu sinni.

Kórónuveiran sem veldur COVID-19 heldur áfram að leika heimsbyggðina grátt og nú þegar brátt verða liðin tvö ár frá því að hún fór að láta til sín taka eru enn fjölmargir að smitast. Síðast í gær greindust 144 smit hér á landi og hafa þau ekki verið fleiri síðan 4. ágúst.

Sem betur fer hafa bólusetningar gengið ágætlega, en þær geta komið í veg fyrir alvarleg veikindi. Þrátt fyrir það er ljóst að svona getur þetta ekki haldið áfram og hafa einhverjir velt fyrir sér hvort samkomutakmarkanir verði hertar að nýju. Sautján eru nú á sjúkrahúsi með veiruna og þar af fimm á gjörgæslu.

Í færslu sinni bendir Egill á að kóvídbylgjan sé að rísa alls staðar í Evrópu.

„Nýgengið hér er mjög hátt og tölur um spítalainnlagnir vekja ugg. Sóttvarnayfirvöld hljóta að fara að taka þetta fastari tökum. Kannski er aftur kominn tími á fréttamannafundi þríeykisins,“ spyr Egill að lokum.