Óhætt er að segja að smekkur fólks á ís sé misjafn og virðist fólk hafa mjög sterkar skoðanir á því hvernig hann á að vera. Íslendingar eru mikil ísþjóð enda fátt betra en að fá sér einn með dýfu og hrískúlum á sunnudagsrúntinum.
Vinsælustu ísbúðirnar bjóða flestar upp á tvennskonar ís úr vél; hinn hefðbundna rjómaís og svo það sem kallað er „gamli ísinn“ en hann er þynnri og mjólkurkenndari en rjómaísinn. Egill nokkur Sigurðsson varpaði ákveðinni sprengju í hinn fjölmenna Facebook-hóp Matartips fyrr í dag, en þar birti hann mynd af tvennskonar ís; annars vegar gamla góða rjómaísnum og svo „gamla ísnum“ svokallaða. Það fór ekkert á milli mála hvaða skoðun Egill hefur.
„Ísinn á hægri hönd er alvöru rjómaís, mjúkur, bragðmikill og æðislegur í alla staði. Til vinstri er það sem fólk kallar "gamli ísinn" og er óætur í alla staði. Lengi lifi rjómaísinn.“
Eins og að framan greinir skiptist fólk í tvær fylkingar þegar kemur að rjómaísnum og svo „gamla ísnum“.
„Gamli ísinn ætti ekki að vera til, vatn með mjólkurbragði,“ segir einn sem tekur undir upphafsinnleggið. Fleiri athugasemdir eru í svipuðum dúr: „Mér finnst gamli ísinn andstyggilegur,“ segir í einni athugasemd og í annarri segir: „Finnst þessi gamli minna mig á undanrennu og sorbet en ekki ís.“
Aðrir eru á því að gamli ísinn sé miklu betri.
„Svo innilega ósammála. Get ekki hugsað mér rjómaís eftir að ég prófaði gamla ísinn. Miklu ferskari og bragðbetri. Ekki þetta væmna rjómabragð. Bestur hjá Vesturbæjarís og Huppu,“ segir í einni athugasemd. Þá bætir einn við: „Þarna fékkstu allan vesturbæ Reykjavíkur upp á móti þér með einu innleggi!! Vel gert.“
Svo segir í enn annarri athugasemd: „Eftir að ég smakkaði gamla ísinn hef ég ekki snúið til baka.“
Það er ljóst að skoðanir fólks á þessu eru misjafnar. Hvað segja lesendur? Vilja þeir hinn hefðbundna rjómaís eða er gamli ísinn betri?