Egill var dauð­vona í fram­boði: „Hver kýs mann sem á kannski fjórar til átta vikur eftir?“

Egill Þór Jóns­son var þrí­­tugur í sam­búð og átti von á sínu öðru barni. Hann var að stíga sín fyrstu skref í pólitíkinni og alltaf verið heilsu­hraustur en eftir að hafa verið slappur í nokkurn tíma greindist hann með stór­eitil­frumu­­krabba­­mein.

Þetta var árið 2021 en Egill er nú kominn aftur til starfa. Hann var gestur í þættinum Spjallið með Frosta Loga­syni á hlað­varps­veitunni Brot­kast.

„Þetta gerði fyrst vart við sig í lungunum. Ég átti erfitt með andar­drátt. Ég fór til læknis og var greindur með lungna­bólgu. Ég var and­stuttur, fór að svitna á nóttunni,“ segir Egill.

Egill fór fyrst á Lækna­vaktina og var greindur með vöðva­bólgu. Næst leitaði hann til heimilis­­læknis sem sendi hann í röntgen­­mynda­töku og var hann greindur með lungna­bólgu og fékk við því sýkla­lyf. Síðar fór hann aftur á Lækna­vaktina þegar að sýkla­lyfja­­skammturinn hans var búinn þar sem ein­­kennin fóru aftur að á­­gerast.

„Eitt kvöldið var ég að hósta og hóstaði blóði. Það er í öllum bíó­myndum, ef þú hóstar blóði þá ertu með krabba­mein. Ég fór niður á bráða­mót­töku daginn eftir og var á spítalanum í fimm vikur.“

Egill átti litið barn á þessum tíma. „Að horfa upp á ein­hvern veikan er held ég erfiðara,“ segir Egill.

Egill var síðan í próf­kjöri fyrir lista Sjálf­stæðis­flokksins í Reykja­vík vorið 2022 þegar hann fékk þær hræði­legu fréttir að krabba­meinið væri byrjað að dreifa sér.

„Þá er þetta komið í brisið, magann, nýrun, nýrnahetturnar og allan þennan pakka. Ég horfði á konuna mína og sagði: Það þýðir ekki að henda inn hvíta handklæðinu núna. Það halda allir að ég sé að drepast.“ Sem ég var augljóslega að gera.“

Krabba­meinið var komið á fjórða stig og var sagt við hann þetta væri dauða­dómur. „Hver kýs mann með krabba­mein á fjórða stigi? Sem á kannski fjórar til átta vikur eftir.“

Hann hélt þó á­fram í próf­kjörinu án þess að segja neinum frá al­var­leika veikinda sinna. Hann eyddi kjör­deginum í lyfja­með­ferð á meðan með fram­bjóð­endur han hringdu í kjós­endur.

Egill er fyrsti Ís­­lendingurinn til að vera sendur til Sví­­þjóðar í Car-T-Cell með­­ferð og bar með­ferðin ó­trú­legan árangur. Egill mun nú taka sæti sem borgar­full­trúi.