Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason er virkur á Facebook og hefur verið það lengi. Ekki er útlit fyrir að það breytist ef marka má færslu Egils á Facebook.
Facebook og Twitter eru tveir stærstu samfélagsmiðlarnir þar sem fólk getur átt í skoðanaskiptum og vakti það athygli þegar tilkynnt var að auðmaðurinn Elon Musk væri að eignast Twitter.
„Ég ætla að játa hér óbeit mína á Twitter,“ segir Egill sem rekur þessa óbeit til atviks fyrir tæpum áratug þegar hann komst að því að einhver þóttist vera hann á Twitter.
„Kom fram undir mínu nafni, með mynd af mér. Það sem verra er - viðkomandi var greinilega að fylgjast með mér. Hann birti pósta þar sem beinlínis kom fram að ég og fjölskyldan hefðum nú verið hér og þar – og það var allt rétt,“ segir Egill.
Hann kveðst hafa reynt að komast að því hver þrjóturinn væri en fann það aldrei út.
„Kvartaði við Twitter en þaðan fékk ég ekkert nema hroka og dónaskap. Mér skilst reyndar að síðan þá hafi Twitter tekið eitthvað til í sínum ranni. En ekki líst mér á að dólgurinn Elon Musk eignist fyrirtækið,“ segir hann.