Egill um húsin á Heklureitnum: „Hvenær verður komið nóg?“

„Manni sýnist þetta vera dæmi um allt sem er rangt í íslenskum húsbyggingum um þessar mundir,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason um teikningar sem birtust um helgina af húsum sem til stendur að byggja á Heklureitnum svokallaða.

Morgunblaðið greindi frá því á föstudag að áformað sé að hefja sölu íbúða vorið eða sumarið 2025. Gert er ráð fyrir 180 íbúðum í tveimur fyrstu áföngunum á reitnum en alls verði þar um 440 íbúðir.

Egill vekur sérstaka athygli á þessum orðum sem Örn Kjartansson fjárfestir lét falla í viðtali við Morgunblaðið um húsin á reitnum.

„Hús­in tvö eru stór­ir skrokk­ar, með 83 og 103 íbúðum, sem ger­ir það að verk­um að við get­um búið til marg­ar vör­ur í einu húsi.“

Egill segir að byggt sé alltof hátt og þétt og of langt fram í götuna, 7-8 hæðir upp.

„Allt gengur út á að fá sem flesta fermetra til að selja. Þetta er verktakaræði - ekki getur maður ímyndað sér að arkitektar fíli þessi einsleitu hús. Og svo til að kóróna allt er talað um íbúðirnar sem "vörur". Við sjáum samskonar hverfi rísa á Valssvæðinu og austan við Smáralind. Hvenær verður komið nóg?“

Hægt er að sjá teikningar af húsunum hér.