Egill þungur á brún: „Þetta verður löng barátta“

Egill Helgason fjölmiðlamaður er ekkert sérstaklega bjartsýnn á framhaldið vegna kórónuveirufaraldursins. Hann telur að framundan sé löng barátta, meðal annars vegna nýrra afbrigða kórónuveirunnar sem greinst hafa í fjölmennum samfélögum.

Egill gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni þar sem hann deilir umfjöllun The Times frá því í morgun. Þar er greint frá því að Bretar ætli að gefa einstaklingum yfir 50 ára þriðju bólusetninguna í haust til að sporna við nýjum afbrigðum veirunnar.

„Þetta verður löng barátta. Bretar undirbúa þriðju umferð bólusetningar síðar á árinu, gegn nýjum afbrigðum. Það er ljóst að hjarðónæmi næst ekki í Bandaríkjunum. Og misskiptingin í dreifingu bóluefnis milli heimsálfa er ógn við allt mannkyn. Það þarf að gera miklu betur - hugsa stærra,“ segir Egill og bætir við að um hnattrænt vandamál sé að ræða sem verður ekki leyst innan landamæra einstakra ríkja.

„Meðan veiran er svona víða myndast ný afbrigði sem eru frábrugðin hinum fyrri. Og nánast öruggt er að veiruafbrigði sem verður landlægt meðal milljónaþjóða eins og Indlands og Brasilíu berist fyrr eða síðar til Evrópu – og Íslands. Það þarf a.m.k. miklar varnir til að koma í veg fyrir það.“

Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, skrifar athugasemd við færslu Egils þar sem hann bendir á að bóluefnin veiti víðtæka vernd.

„Þau beinast að spike (brodd) próteini sem hefur mikla skorður til að breytast þar sem það binst við viðtaka á yfirborði frumunnar og getur þannig tapað virkni sinni ef það breytist mikið. Það er þó svo sannarlega mögulegt að komast undan virkni bóluefnanna amk að einhverju leyti en þá er tiltölulega auðvelt að þróa ný afbrigði bóluefna,“ segir Magnús sem bætir við að við höfum mikla reynslu af slíku kapphlaupi. Nefnir hann til dæmis bóluefni gegn inflúensu – veiru sem þó breytist mun hraðar en kórónuveirur.

„Þróun nýrra afbrigða verður mun einfaldari þar sem það þarf einfaldari klínískar rannsóknir þar sem nýja bóluefnið er næstum það sama og það sem á undan er komið.

Lyf munu ekki koma í stað bóluefna en þau munu vonandi þróast en því miður höfum við afar fá lyf sem hafa sýnt góða virkni til þessa.“