Egill Helgason fjölmiðlamaður segir að þessi vika gæti orðið afdrifarík haldi COVID-19 smit áfram að greinast hér á landi. Fimmtán innanlandssmit greindust um helgina og veltir Egill því fyrir sér hvort herða þurfi takmarkanir innanlands.
Eins og greint var frá á föstudag þurfa ferðamenn sem koma til landsins frá og með 19. ágúst að gangast undir tvær skimanir, aðra við komuna til landsins áður en farið er í sóttkví í 4-5 daga þar til niðurstaða úr seinni skimum fæst.
Egill segir að fjölgun smita við landamæri sýni okkur að sóttin hafi sótt í sig veðrið í nágrannalöndum okkar og það eigi líka við um lönd sem við höfum talið örugg og þaðan sem ekki er skimað. Þessi staðreynd renni stoðum undir ákvörðun stjórnvalda sem kynnt var á föstudag.
Egill viðraði þessar hugleiðingar sínar á Facebook í gær og hafa yfir 100 athugasemdir við skrifaðar við færsluna. Sumum finnst Egill gera of mikið úr málinu en aðrir benda á að veiran sé ekkert lamb að leika sér við.
„Vonum sannarlega að viti á gott að flestir smitaðir séu i sóttkví. Næsta vika gæti orðið afdrifarík. Skólar eiga að byrja þá en mér sýnist reyndar að sumir bíði fram í þarnæstu viku, amk. Framhaldsskólar,“ segir í Egill í einni athugasemd.
Egill, sem hefur ekki legið á skoðunum sínum varðandi faraldurinn undanfarna mánuði, var í áhugaverðu viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins um helgina. Þar sagðist hann hafa haft vonda tilfinningu gagnvart farsóttinni þegar hann las fréttir um uppgang hennar í Kína.
„Í febrúar keypti ég frystikistu í fyrsta sinn á ævinni og við birgðum okkur upp af mat og lyfjum. Það var í fyrsta sinn sem ég hef búið mig undir að loka mig af. Sem betur fer reyndist pestin ekki jafn skæð og til dæmis Spænska veikin, en maður þarf samt að beita öllum ráðum til að smitast ekki,“ sagði hann og bætti við að það væri ekki bara dauðinn og veikindi nánustu aðstandenda sem hann óttast. Heldur einnig langvarandi afleiðingar farsóttarinnar.
Þá sagði hann að einungis harðar aðgerðir dugi til að veikin berist ekki til landsins.
„Ég veit að mörgum vinum mínum finnst ég vera óttalegur tuðari, óttaslegið gamalmenni, en mér sýnist að nú séu æ fleiri að komast á mína skoðun,“ sagði hann og bætti við að hann væri þreyttur á frasanum sem stundum heyrist að við þurfum bara að lifa með veirunni.
„Ef landamærin eru opin og smit berst stöðugt inn í landið, þýðir það þá að þeir sem eru viðkvæmir séu í einhvers konar stofufangelsi? Þetta er ansi stór hluti þjóðarinnar. Mér hafa fundist skilaboðin vera ansi loðin undanfarið, en mér sýnist að ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og sóttvarnalæknis frá því í gær [föstudag] séu mjög skynsamlegar.“
Kóvíðtölur eru ekki góðar. 15 innanlandssmit síðustu tvo daga. Spurning hvort þurfi að herða takmarkanir innanlands....
Posted by Egill Helgason on Sunnudagur, 16. ágúst 2020