Egill svekktur: Ekki fengið einn kassa án þess að hann sé ónýtur – Sjáðu myndina

Ýmsir hafa furðað sig á lélegum mandarínum í verslunum hér á landi að undanförnu og er sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason í þeim hópi.

Egill gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni þar sem hann kveðst ekki geta hugsað sér jól án þess að séu mandarínur. Egill viðurkennir að hann kaupi mikið af þeim enda mandarínur yfirleitt góðar og ómissandi.

„Þessi jól hefur borið svo við að ég hef ekki fengið einn einasta mandarínukassa án þess að hann væri ónýtur. Ávextirnir bragðvondir, þurrir, trénaðir eða þá alltof linir. Eru svo farnir að rotna stuttu eftir að þeir koma úr búðinni. Þetta eru vonbrigði,“ segir hann.

Egill virðist ekki einn um þessa skoðun og taka ýmsir undir með honum.

„Sammála. Mikið um skemmdar eða sem skemmast fljótlega. Datt aldrei um safaríkar og góðar mandarínur þessi jólin og þá vantar mikið,“ segir Birkir Jón Jónsson, fyrrverandi þingmaður og bæjarfulltrúi.

„Hingað virðist stundum sent tómt svínafóður,“ bætir upplýsingafulltrúinn Ragnhildur Sverrisdóttir við.