Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason var kominn í ómögulega stöðu þegar hann átti skyndilega að syngja ljóð.
„En ég kunni ekki neitt og hafði ekki æft mig,“ lýsir hann í færslu á Facebook.
„Salurinn (Í Kópavogi held ég) var fullur af fólki. Ég ætlaði að hætta við. En þegar ég byrjaði að syngja, streymdi fram fagur söngur - rödd sem ég kannaðist ekki við að hafa. Lögin þekkti ég ekki heldur, en þau voru falleg, já, mjög falleg.“
Svo kemur í ljós hvað hann var í raun að gera: „Allavega í draumnum. Maður er hálfgerður næturgali.“
Innlegg Egils hefur vakið mikla lukku á samfélagsmiðlum enda hann þekktur fyrir allt annað en að syngja.
Margir hafa lagt orð í berg, þar á meðal Ólína Þorvarðardóttir, sem segir: „Þetta boðar gott. Kannski nýtt verkefni.“
Gunnar Lárus Hjálmarsson, best þekktur sem Dr. Gunni, spurði svo:
„Endaði svo draumurinn á því að þú fórst að leita að klósetti til að pissa í? Því miður enda allir mínir draumar þannig!“