Samfélagsrýnirinn Egill Helgason segir fráleitt að verslun ÁTVR, yfirleitt kölluð Ríkið, fari úr Miðborg Reykjavíkur.
Ég nota þjónustu verslana ÁTVR ekki mikið núorðið, en mér finnst fráleitt að Ríkið fari úr Miðborginni, að ekki sé búð í Miðbænum, þar sem íbúar, aðkomufólk og ferðamenn geta farið og náð sér í bjór eða vín,“ segir Egill í færslu á Facebook.
Vísar hann í grein Fréttablaðsins um málið.
„Staðirnir sem eru nefndir í greininnni eru ómögulegir,“ segir Egill. „Á Hallveigarstíg er stanslaust umferðaröngþveiti, ég bý þar rétt hjá og get vottað það. Hallvegarstræti er á Kirkjusandi sem er býsna mikið úrleiðis; það er í raun hluti af hverfinu sem hefur risið kringum Borgartún. Fiskislóð er úti á Granda þangað sem fæstir fara nema á bíl. Hið sama er að segja um JL-húsið – það er ekki í Miðborginni. Best væri að láta búðina einfaldlega vera á sínum stað.“
Heiða B. Heiðars verslunarrekandi, segir þetta óþolandi: „Þetta er óþolandi! Fyrst Pósthúsið og núna Vínbúðin. Opinber friggings fyrirtæki eru þau sem vinna helst að því að halda fólki akandi um borgina.“
Pétur nokkur bendir á Hafnartorg: „Kannski myndi góð vínbúð gefa hinu hræðilega Hafnartorgi einhvern tilgang.“ Egill tekur undir það og bendir á bílastæðin undir húsinu.
Agli lýst ekkert á Fiskislóð. „Að hrúga allri verslun og þjónustu á svæði þar sem eru bara skemmur og bílastæði er nú ekkert sérlega góð latína,“ segir hann. „Líka örstutt í Ríkið á Eiðisgranda þannig að í raun vantar ekki búð þar. En húsið sem Átvr hefur augastað á þar er reyndar hið eina á svæðinu sem ekki grindahús - semsagt reist úr steinsteypu. Aðgengi gangandi fólks þarna er svo lélegt að maður labbar varla úr Byko í Bónus - heldur fer á bílnum milli stæða.“
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson kom svo með skemmtilega hugmynd: „Hegningarhúsið.“
Agli lýst vel á það: „Brilljant hugmynd.“