Egill Ólafsson greindist með Parkinson-sjúkdóminn fyrir tæpum tveimur árum. Hann tjáir sig um hann í helgarviðtali við Fréttablaðið.
Aðspurður hvort hann fyllist reiði vegna þessara nýju aðstæðna, svarar hann: „Nei, ég reyni að vera … ég er stundum pirraður. Auðvitað fer þetta í skapið á mönnum og menn fara í geðlægðir og svona. En ég hef verið nokkuð heppinn með það að ég var alltaf tiltölulega bjartsýnn, og ég er áfram bjartsýnn. Það hjálpar mér. En auðvitað verður maður pirraður,“ segir Egill.
Hann leggur áherslu á að þeir sem séu með sjúkdóminn gefi ekki upp vonina.
„Þetta er ekki versti sjúkdómurinn sem hægt er að fá. Menn eru að fá krabbamein sem dregur unga menn til dauða á örskömmum tíma. Yngsti maðurinn sem hefur fengið Parkinson er þrjátíu og fimm ára. Það gengur hratt yfir af því að frumuskiptin eru örari. Það er ansi ungt. Það er margt sem hendir menn. Ég held að ég sé heppinn að hafa fengið þetta svona seint.“
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.