„Maður trúir því eiginlega ekki að þessi vinsæla keðja ísbúða sé enn að nota frauðplast,“ segir Egill Helgason, sjónvarpsmaður og fjölmiðlamaður, á Facebook-síðu sinni og birtir mynd af umbúðum utan um ís frá Ísbúð Vesturbæjar – einni vinsælustu ísbúð landsins.
Egill bendir á að plastmengun í veröldinni sé hreinn viðbjóður og þar sé frauðplastið einna verst. Hann segir að þegar hann byrjaði að vinna á RÚV fyrir 14 árum hafi frauðplastmál verið í boði þar en þau horfið sem betur fer.
„En plastagnirnar er núorðið að finna í öllu lífríkinu, eins óskemmtileg tilhugsun og það nú er,“ segir Egill sem hefur nokkuð til síns máls enda frauðplast afskaplega lengi að brotna niður í náttúrunni.
Nokkrar borgir í Bandaríkjunum hafa gripið til þess ráðs að banna notkun frauðplasts, til dæmis á veitingastöðum, og má þar nefna Oakland, San Francisco, Chicago og Baltimore og fylki á borð við Maryland, New York, og Vermont.