Fjölmiðlamaðurinn reyndi Egill Helgason er hrifinn af Verbúðarþáttunum og segist bíða spenntur eftir næsta þætti eins og meirihluti landsmanna að líkindum.
Egill gerir þættina að umtalsefni í áhugaverðum pistli á Facebook-síðu sinni.
„Ég er mjög hrifinn af Verbúðarþáttunum, en ég ætla þó að fá að nefna smá hnökra á þeim. Það er myndin sem er dregin upp af fjölmiðlum í þáttunum. Þarna er eiginlega bara einn blaðamaður, hálf skrítinn, hrekst um í miklum mótþróa og fær lítinn hljómgrunn. Þetta er nokkuð fjarri því hvernig ástandið var í íslenskum fjölmiðlum á tímanum sem Verbúðin á að gerast,“ segir Egill og bætir við að nánast megi segja að á þessum tíma hafi verið nokkurs konar gullöld fjölmiðlunar hér á landi. Þá hafi margir fjölmiðlar verið í samkeppni og kaupið auk þess verið gott.
„Flokksblöðin voru á sínum stað, voru ágætar uppeldisstöðvar fyrir blaðamenn, gátu verið krítísk þegar hentaði þeim. Mogginn var orðinn opnari fyrir utanaðkomandi röddum og málflutningi, ritstjórarnir þar voru mjög efins kvótakerfið. DV er þá geysilega öflugt síðdegisblað undir stjórn Jónasar Kristjánssonar, hann var enginn aukvisi. Vikublöð eins og Helgarpósturinn og síðan Pressan og Eintak höfðuðu sérstaklega til ungs fólks og gerðu út á gagnrýna hugsun,“ segir Egill í færslu sinni.
Hann bætir við að Mannlíf og Heimsmynd hafi verið kölluð glanstímarit, en engu að síður mjög vönduð og birt góðar fréttaskýringar.
„Þjóðlíf kom út og var hreint fréttatímarit. Stöð 2 var stofnuð 1986, fréttastofan var geysilega vel mönnuð og fór í mikla samkeppni við fréttastofu RÚV. Bylgjan kom líka til sögunnar það ár með heila fréttastofu og þjóðmálaumræðu, þar var Hallgrímur Thorsteinsson – á Rás 2 svaraði Stefán Jón Hafstein með því að setja upp Dægurmálaútvarpið sem þótti mjög ferskt. Það má líka nefna að á þessum tíma voru líka enn gefin út bæjarblöð og héraðsblöð,“ segir Egill sem endar færsluna á þessum orðum:
„Sennilega hefur blaðamannastéttin aldrei verið jafn öflug á Íslandi – og ástandið á fjölmiðlunum miklu betra en nú. En þetta breytir því ekki að Verbúðin er prýðilegt sjónvarpsefni og maður bíður spenntur eftir næsta þætti.“