Egill: „Nauð­syn­legt að rjúfa öll tengsl á sviði menningar“

Egill Helga­son er myrkur í máli vegna stríðs Rússa á hendur Úkraínu, í Face­book færslu sem hann birtir í morgun. Þar deilir hann frétt Frétta­blaðsins um á­kall Úkraínu­manna að Rússum verði meinað þátt­taka í Euro­vision.

„Míun skoðun er sú að nauð­syn sé að rjúfa öll tengsl á sviði menningar, lista og í­þrótta við Rúss­land næsta misserið,“ segir Egill.

„Það er búið að henda Valery Gergíev, pútíns­vini og hljóm­sveitar­stjóra út úr Car­negi­e Hall og líkega fær hann ekki heldur að stjórna í Scala nema hann taki af­stöðu gegn Úkraínu­stríðinu. Þetta eru ekki skemmti­legar að­gerðir en Vestur­lönd geta ekki svarað með vopnum svo van­þóknun og þvinganir verða að tala.“