Egill minnist á grein sem hann skrifaði árið 1984 - Spádómurinn átti eftir að rætast

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason birti í gærkvöldi áhugaverða færslu á Facebook þar sem hann minnist greinar sem hann skrifaði árið 1984. Hægt er að lýta á grein Egils sem einskonar spádóm um það sem átti eftir að gerast, en hún varðaði Mikhail Gorbatsjov, sem lést í vikunni, en þegar greinin var skrifuð var hann nýkominn á sjónarsviðið.

„Fyrir mörgum árum, 1984, skrifaði ég forystugrein í Tímann (sem þá kallaðist NT) og fjallaði um tiltölulega ungan mann sem þótti líklegur til að gera stóra hluti í Sovétríkjunum. Það gerði hann sannarlega - þau beinlínis lögðust saman.“ skrifar Egill á Facebook.

Þegar grein Egils birtist var Konstantín Tsjernenko aðalritari kommúnistaflokksins í Sóvíetríkjunum og Gorbatsjov nýlega kominn upp á sjónarsviðið. Egill gaf sterklega til kynna að Gorbatsjov ætti eftir að taka við keflinu, sem hann og gerði ári síðar.

„Enn hélt kynslóðin sem fædd var fyrir byltingu áfram að klifra. Það fannst engum ástæða til að vera með óþarfa bjartsýni þegar Konstantín Chernenko tók við embætti æðsta manns. Hann er talinn fulltrúi gamalla og staðnaðra viðhorfa og í ofanálag hefur ekki linnt vangaveltum vestrænna fjölmiðla og stjórnmálamanna um elli hans og heilsufar. Enda er það viðtekin skoðun að ekki líði á löngu þar til nýr húsbóndi taki við í Kreml. Í þessari viku er allt í einu líkt og sá maður birtist fullskapaður á sjónarsviðinu – Mikhail Gorbachev, aðeins 53 ára gamall, unglingur á mælikvarða þeirra Kremlverja.“ skrifaði Egill á sínum tíma.

Óhætt er að segja að spádómur Egils átti eftir að rætast.

Um Gorbatsjov skrifar Egill síðan í dag:

„Gorbatsjov var afar mistækur og það bar vott um skort á raunsæi að halda að hægt væri að endurbæta kommúnismann eða blása í hann lífi. En Gorbatsjov var í grunninn velviljaður maður, maður friðarins, og mun betri en þeir sem komu á eftir honum í því sem átti að heita lýðræði. Nú sitjum við uppi með samviskulausan þrjót og frekar heimskan í þokkabót.“