Egill með Parkinsons: „Harmar að þurfa að segja sig frá þessum viðburði“

Egill Ólafsson, einn af okkar allar bestu tónlistarmönnum síðustu áratugi, getur ekki tekið þátt í kvikmyndatónleikum Með allt á hreinu sem áttu að fara fram þann 11. nóvember næstkomandi.

Tónleikarnir áttu að fara fram í Hörpu og var tilkynning send til miðahafa í morgun, eftir því sem fram kemur á vef Fréttablaðsins.

„Egill harmar að þurfa að segja sig frá þessum viðburði og biðst velvirðingar, en þar sem hann getur ekki lengur stólað á röddina vegna Parkinsonsjúkdóms telur hann best að koma hreint fram og játa sig vanmáttugan,“ segir í tilkynningunni sem Fréttablaðið vísar til.

Segir þar ennfremur að af þeim sökum hafi tónleikahaldarar séð sig knúna til að aflýsa áðurnefndum tónleikum. Mun Harpa því endurgreiða alla miðana.