Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason kom mörgum vinum sínum til að brosa í gær þegar hann lýsti ótrúlegum hrakförum sínum á laugardag.
Egill lýsir því í færslu á Facebook-síðu sinni að honum hafi tekist að leggja fjölskyldubílnum svo illa í bílastæðahúsi á laugardag að hann þurfti að kalla á dráttarbíl til að losa hann.
„Það er einhvers konar met. Hef setið undir stöðugum háðsglósum á heimilinu síðan. Það getur tekið á að eiga kaldhæðna konu,“ segir Egill sem útskýrir ekki frekar hvernig í ósköpunum hann fór að þessu.
Margir hafa kallað eftir því að hann birti mynd en enn sem komið er hefur Egill látið það ógert.
„Sko - maður getur ekki verið góður í öllu...! Þú verður að hugga þig við það... og svo varð þetta líka efni í góða sögu,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir en eins og fyrr segir vakti færsla Egils kátínu margra og hafa rúmlega 250 manns sett svokallað hláturtjákn við færsluna.