Egill hvass: Kallið Alþingi saman og myndið ríkisstjórn strax - „Við eigum erfiða mánuði í vændum“

Egill Helgason, fjölmiðlamaður og samfélagsrýnir, vill að töfum við myndun nýrrar ríkisstjórnar verði lokið hið snarasta til að hægt sé að grípa almennilega inn í Covid-19 faraldurinn. Metfjöldi smita var annan daginn í röð í dag.

„Kóvíðfaraldurinn er nú kominn í hæstu hæðir. Það mun taka marga mánuði fyrir hann að ganga yfir með slíkri útbreiðslu. Á sama tíma situr starfsstjórn – ríkisstjórn sem hefur ekki fullt umboð til að stjórna landinu og getur takmarkað beitt sér. Það er náttúrlega ekki gott þegar stefnir í neyðarástand,“ segir Egill í færslu á Facebook sem hefur vakið mikla athygli á stuttum tíma.

„Verkefnin tengjast ekki bara sóttvörnum heldur efnahagslegum og félagslegum aðgerðum á farsóttartímum. Það sem tefur er málareksturinn í kringum talninguna í Borgarnesi. Ég held að menn verði að gjöra svo vel að ljúka honum, kalla Alþingi saman og mynda ríkisstjórn – hið fyrsta.“

Hann vísar til stöðunnar í Danmörku: „Mette Fredriksen forsætisráðherra ávarpaði dönsku þjóðina vegna kóvíd í fyrrakvöld – ráðamenn íslensku þjóðarinnar þurfa að stíga fastar inn. Við eigum erfiða mánuði í vændum.“

Björn Valur Gíslason, fyrrverandi varaformaður VG, sagði ríkisstjórnina klára:

„Ríkisstjórnin er ekki starfsstjórn og hefur fullt umboð til að grípa til hvaða aðgerða sem hún telur rétt að gera.“

Egill svaraði um hæl:

„Það þarf að kalla saman Alþingi eftir kosningar, mynda nýtt ráðuneyti, stjórnin sem nú situr getur ekki lagt fram fjárlagafrumvarp eða neitt slíkt.“