Egill hrósar Óla í hástert: Nýtti bæturnar til að gera góðverk – „Ég er þrjóskari en andskotinn“

„Óli er einstakur og starfið sem hann og hans fólk vinna á erfiðu svæði er meiriháttar,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason um Ólaf Halldórsson.

RÚV ræddi við Ólaf á dögunum en hann er fyrrverandi sjómaður sem nýtti sanngirnisbætur sem hann fékk vegna illrar meðferðar í Landakotsskóla til að stofna skóla og heimili í Kenía fyrir munaðarlaus börn.

Egill gerði umfjöllunina að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og bendir hann á að Ólafur sé að vinna ótrúlegt starf, enda sum börnin sem fá aðhlynningu, næringu og menntun hjá honum komi beinlínis úr ruslinu.

„Það er engin yfirbygging, engin fínimennska og peningar fara ekki í skrifstofuhald. Óli er sjálfur á staðnum og baráttan er í raun upp á líf og dauða. Hann er með börnunum og gefur sig allan í starfið - hugsjónin er að örsnauðir krakkarnir sem fengu nánast ekkert veganesti inn í heiminn, sum kannski ekki annað en sjúkdóma, sult og ofbeldi, eignist góða og örugga tilveru. Óli segir að þetta sé köllun - og ég tel að hún sé mikil gæfa fyrir hann sjálfan ekki síður en skjólstæðinga hans. Óli hefur átt undarlegt líf sem er merkilegt að fræðast um.“

Í umfjöllun RÚV kom fram að líf Ólafs hafi gjörbreyst þegar hann heimsótti Masaíland í Kenía í fyrsta sinn. Þar kynntist hann heimafólki sem rak heimili fyrir munaðarlaus börn og sá að verk var að vinna. Hann segir að starfið sé krefjandi og erfitt en hann sé þó ekki týpan sem gefst auðveldlega upp.

„Ég er þrjóskari en andskotinn þannig að ég er ekkert að fara að leggja upp laupana sko. Ég er rétt að byrja.“