Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason segist hlakka til að fara loksins í bólusetningu gegn COVID-19. Egill þarf þó að bíða enn um sinn enda fæddur árið 1959 og því rétt rúmlega sextugur.
Egill skrifar skemmtilega færslu á Facebook þar sem hann greinir frá tilhlökkun í bland við örlítinn kvíða.
„Ég hlakka til að fara í bólusetningu. En ég hlakka ekki til að fara í Laugardalshöllina og hitta jafnaldra mína og sjá hvað þeir eru orðnir ferlega gamlir,“ segir hann. Þessa vikuna fóru fram bólusetningar fyrir einstaklinga sem eru fæddir 1951 og fyrr.
Ef marka má athugasemdir við færslu Egils eru margir sem tengja við þennan kvíða. „Ég er enn að jafna mig á þessu, finn innilega til með jafnöldrum mínum, ekki vildi ég verða svona,“ segir til dæmis einn kunningi Egils.
Margrét Hrafnsdóttir kvikmyndaframleiðandi bendir Agli á að hann þurfi ekkert að óttast enda grímuskylda enn í fullu gildi hér á landi.