Egill Helga: „Út í hött að lítill hópur ofur­­­launa­­fólks slíti sig frá sam­­fé­laginu“

Sjón­varps­maðurinn Egill Helga­son er allt annað er sáttur með ofur­laun stjórn­enda á Ís­landi.

Hann deilir frétt Vísis þar sem Davíð Harðar­son, stjórnar­for­maður Haga, segir það skyldu stjórnarinnar að tryggja hæfa stjórn­endur og það geri þeir með því að bjóða sam­keppnis­hæf laun.

„Sam­­keppnis­hæf við hvað?“ spyr Egill Helga á Face­book.

„Stað­­reyndin er sú að orðin er til mak­ráð stjórn­enda- og for­­stjóra­­stétt sem passar gríðar­­lega vel upp á hags­muni sína. Stéttar­vitundin er hvergi meiri. Þetta fólk skipar hvað annað í stjórnir og stöður og passar upp á að kjörin batni stöðugt, langt úr takti við það sem gerist annars staðar í sam­fé­lagnu,“ heldur hann á­fram.

„Reyndar hefur það gerst að stjórn­­mála­­menn og æðstu stjórn­endur hjá ríkinu bera sig saman við þennan hóp og hafa sótt launa­hækkanir í skjóli þess síðustu ár. Upp­­­lýsingar sem hafa birst undan­farið um ofur­­­kjör stjórn­enda­­stéttarinnar hljóta að tor­velda mikið kjara­­samninga sem eru fram­undan. Við búum í ör­­þjóð­­fé­lagi og það er út í hött að lítill hópur ofur­­­launa­­fólks slíti sig frá sam­­fé­laginu,“ skrifar Egill að lokum.