Egill Helga og Gunnar Smári í hár saman: „Í hvaða veröld lifir þú?“

Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason birti í gærkvöldi færslu á Facebook sem hefur búið til stórt rifrildi á milli þeirra Gunnars Smára Egilssonar, stofnanda Sósíalistaflokksins, og Egils Helgasonar fjölmiðlamanns.

Hallgrímur hvatti til þess að Evrópa þyrfti nú að standa saman, vegna fasisma sem hann upplifir bæði í austri og vestri. En þar vísar hann til stríðs Rússa í Úkraínu og ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna varðandi þungunarrof.

„Fasismi í austri, fasismi í vestri… og Evrópa föst á milli. Nú verður hún sem aldrei fyrr að standa saman og vera kyndilberi heimsins þegar kemur að mannúð, umburðarlyndi og lýðræði. Fyrir mér er þetta alveg næg ástæða fyrir okkur Íslendinga til að gerast aðilar að ESB.“ skrifaði Hallgrímur.

Egill Helgason tók undir orð Hallgríms og skrifaði:

„Auðvitað er til fasismi í Evrópu og gömlu kommúnistaríkin eru sérlega viðkvæm fyrir honum. Aðrar öfgastefnur eru líka á kreiki í álfunni. En hin evrópsku gildi, lýðræði, mannréttindi, mannhelgi, velferð er það sem við þurfum að reiða okkur á nú. Þar eigum við samleið með Kanada, Nýja-Sjálandi, Ástralíu og sumpart Japan. En það getur vel verið að einhver ESB ríki detti fyrir borð. Rússar hafa róið öllum árum í þá átt og svo geta Kínverjar hirt bitana eins og þeir gera í Afríku - og þar erum við ekki að tala um einhverja smá spillingu heldur alltumfaðmandi svindl og græðgi í auðlindir sem lög ná aldrei yfir.“

Gunnar Smári var ekki lengi að leggja orð í belg, en hann segir ástæðuna fyrir fasismanum vera nýfrjálshyggjuna.

„Ástæða þess að fasisminn er kominn lengra í austrinu er að fasismi fylgir nýfrjálshyggjunni. Þannig var það á síðustu öld og líka á þessari.“

Egill segir það ekki rétt hjá Gunnari, og vill meina að niðurbrot kommúnismans sé helsta ástæða fasismans.

„Neibb. Þetta tengist niðurbroti gilda á tíma kommúnismans. Þegar sannleiknum var snúið á hvolf og fólk þurfti að sýnast vera eitthvað annað en það var í rauninni. Hefur reynst mjög erfitt að ná upp borgaralegu samfélagi eftir hið algjöra siðferðisgjaldþrot fyrst nasistatímans og síðan kommúnismans. Ungverjaland og Pólland eru reyndar dálítið sérstök, í fyrra landinu hefur þjóðerernisofsi verið vandamál í heillangan tíma, í seinna landinu var ætíð góður hljómgunnur fyrir andsemítisma og hatri gegn alþjóðastefnu, líka á tíma kommúnista. Kirkjan pólska er mjög afturhaldssöm. Ríkin sem bjuggu sjálf undir fasisma í langan tíma, Spánn og Portúgal, hafa hins vegar dafnað mjög vel innan hinnaar evrópsku lýðræðishefðar.“

Gunnar Smári svaraði um hæl og spurði Egill í hvaða veröld hann lifði í. Hann benti til að mynda á að ástandið á Spáni væri ekki eins gott og Egill gæfi til kynna.

„Jæja góði, reis fasisminn ekki upp við hrun efnahagsstefnu Weimer, sem var eiginlega á pari við stefnu xD og SA í dag, heldur vegna niðurbrots gilda á tíma kommúnismans? Fasisminn í austrinu er afkvæmi ykkar hægri manna, eins og fasisminn á síðustu öld. Og í hvaða veröld lifir þú? Spánverjar fangelsa stjórnmálafólk fyrir skoðanir sínar, mitt inn í ESB.“

Egill bað þá Gunnar um að hætta að vísa í kvikmyndagerðarkonuna Naomi Klein og fræðamanninn Noam Chomsky og í kjölfarið benti hann honum á bókina From Peoples into Nations: A History of Eastern Europe, sem hann vill meina að innihaldi alvöru upplýsingar um ástandið.

Í kjölfarið spurði Gunnar Smári kaldhæðnislegar spurningar um bókina: „Er útskýrt í þessari bók hvernig hrörnun gilda innan kommúnisma bjó til Mússólíní og Hitler? Og að Bandaríkin séu að þróast í átt að fasisma af sömu ástæðu?“ Egill svaraði:

„Fólk kemur úr samfélagi eins og hinu kommúnístíska þar sem öll stjórnmálastarfsemi er bönnuð og öll frjáls félagasamtök - allt nema að enduróma innihaldslausa frasa í hálfa öld, vitandi að þeir stemma ekki við raunveruleikann. Í raun var komið fram við þegnana eins og heimsk börn. Þeim tryggt visst öryggi ef þeir höfðu sig hæga. Þegar þetta hrynur svo einn daginn - og hrunið var algjört - getur tekið býsna langan tíma að byggja upp lýðfrjálst samfélag. Í hruninu eru frækorn nýrra öfga - og viðspyrnan því miður ekki nógu sterk.“

Þess má geta að rifrildi Gunnars og Egils hefur haldið áfram og hægt að lesa enn fleiri ummæli þeirra á Facebook-síðu Hallgríms Helgasonar.