Egill: „Hætt við að þetta sé uppskrift að nýrri bylgju“ – Fjögur smit úr sömu fjöl­skyldu í gær

„Vonum að það sleppi í þetta skipti,“ segir fjöl­miðla­maðurinn Egill Helga­son á Face­book-síðu sinni. Eins og greint var frá í morgun greindust fjögur kórónu­veiru­smit innan­lands í gær en það er það mesta á einum degi síðan í janúar.

Egill deilir frétt Morgun­blaðsins þar sem rætt var við Þór­ólf Guðna­son sótt­varna­lækni um málið. Í fréttinni stað­festi hann að smitin fjögur sem greindust í gær tengist landa­mæra­smiti og eru hinir smituðu allir úr sömu fjöl­skyldunni.

Egill segir að svona geti þetta gerst, far­þegi úr milli­landa­flugi greinist ekki fyrr en í seinni skimun en er þá búinn að smita í kringum sig. „Við megum ekki missa þetta út úr höndunum núna, þegar innan­lands­smitin voru komin niður í núll – það yrði skelfi­legt á­fall. Hætt við að þetta sé upp­skrift að nýrri bylgju.“

Þór­ólfur segir við Morgun­blaðið að veik­leikar nú­verandi kerfis tengist landa­mærunum. Smitaðir ein­staklingar virði kannski reglur um sótt­kví eða ein­angrun en deili á sama tíma heimili með öðrum og smiti þannig út frá sér. Mögu­legt sé að koma í veg fyrir það með því að skylda fólk í sótt­varna­hús þegar það kemur til landsins.

Þess má geta að allir hinir smituðu voru í sóttkví þegar þeir greindust. Alls eru 26 í einangrun hér á landi vegna COVID-19 og 11 á sjúkrahúsi.