Egill: Framboð Björgvins gæti breytt stöðunni í borginni – „Og hann talar um börnin – eins og Ásmundur Einar“

Egill Helgason, sjónvarpsmaður og stjórnmálarýnir, segir að hugsanlegt framboð Björgvins Páls Gústavssonar fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík geti breytt stöðunni í borginni þó nokkuð.

Egill gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en eins og komið hefur fram hefur Björgvin ákveðið að gefa á sér sem oddvita Framsóknarflokksins í borginni fyrir komandi kosningar. Sækist hann eftir 1. til 2. sætinu á lista flokksins.

Framsóknarflokkurinn hefur verið á talsverðu flugi undanfarin misseri og skemmst er að minnast sigursins sem vannst í Alþingiskosningunum í haust. Flokkurinn hefur breytt um kúrs undanfarin misseri og er skyndilega farinn að höfða til yngra fólks.

Egill virðist hafa talsverða trú á því að Framsóknarflokkurinn, með Björgvin Pál í forystu, geti náð árangri í kosningunum í vor. Björgvin er landsliðsmarkvörður í handbolta og vinsæll meðal þjóðarinnar, enda frábær íþróttamaður og mikill leiðtogi innan vallar sem utan.

„Þetta gæti breytt stöðunni í borginni nokkuð. Björgvin virkar sem sérlega vænn maður og viðkunnanlegur. Og hann talar um börnin – eins og Ásmundur Einar sem vann kosningasigurinn í Reykjavík í þingkosningunum í haust. (Kannski leysast kosningarnar þá ekki upp í tómt þras um skipulagsmál og umferð?),“ segir Egill á Facebook-síðu sinni.

Fylgjendur Egils á Facebook virðast margir taka undir með honum. „Hann fær mitt atkvæði,“ segir til dæmis einn. Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, leggur orð í belg og segir að honum lítist vel á að fá Björgvin Pál inn í borgarmálin. Sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson er sömu skoðunar.

„Það verður fínt að fá Framsókn inn í vinstrimeirihlutann ef Björgvin verður þar ofan á. Félagsleg áhersla hans á börn er á miklu meiri samleið með vinstri flokkunum en Sjálfstæðisflokknum. Þar að auki er Framsókn í meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðismönnum í landstjórninni og það mundi stríða gegn tvíeðli flokksins að vera líka með honum í borgarstjórn.“

Alexöndru Briem, forseta borgarstjórnar, líst ágætlega á að fá Björgvin Pál inn í borgarmálin þó hann verði í öðrum flokki en hún. Hún slær á létta strengi í athugasemd sinni.

„Hann virkar eins og fínn gaur. Flokkurinn er líka heppinn að fá hann, áður en hann steig fram voru engir markverðir frambjóðendur hjá Framsókn í Reykjavík. En að öllu gamni slepptu, þá tek ég amk. fagnandi góðu fólki sem hefur hugsjón fyrir borginni.“