Egill Helgason, fjölmiðlamaður, getur ekkert að því gert að taka upp hreim þess sem hann talar við. Segir hann á Facebook að hann sé „dálítill Zelig“ í sér og vísar þar til kvikmyndar Woody Allen um Leonard Zelig, mann sem breytti sér í það fólk sem var í kringum hann og varð síðar þekktur sem „mannlega kamelljónið“.
„Konan mín gerir grín að því þegar ég hitti Indverja og byrja strax að tala ensku með indverskum hreim, hið sama gerist þegar ég hitti Íra eða Ástrali - eða fólk hvaðan sem er – ég fer ósjálfrátt að taka upp málhreim þess,“ segir Egill.
„Um koll keyrði á Húsavík á gær. Þar býr skýrmæltasta fólk á Íslandi. Ég var varla kominn inn í bæinn og ekki búinn að hitta neinn innanbæjarmann þegar fjölskyldan heyrði mig segja með norðlenskum framburði: "Er hann stúdent frá Menntaskólanum á AKureyri?" og aðeins seinna: "Er til ALKa Seltzer?" Þau hristu hausinn. En ég get ekki að þessu gert.“
Eiginkona Egils, Sigurveig Káradóttir, kom með dæmi: „Hann hringdi svo á leigubíl fyrir þær og talaði íslensku með indverskum hreim þegar hann pantaði.....ég sprakk úr hlátri....þetta varð mjög pínlegt....Síðan þegar hann talar ensku við fólk með minni orðaforða, þá minnkar orðaforðinn. Síðasta dæmi var í fyrradag þar sem hann hringdi á hótel og talaði við erlendan starfsmann og var alveg..."thank you very nice"..... “