„Það er furðuleg afneitun gagnvart þessu. Eins og sumir bíleigendur telji að sér vegið þegar bent er á þessar staðreyndir,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason.
Frétt Fréttablaðsins í dag um mikla svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu í gær hefur vakið talsverða athygli. Í fréttinni er meðal annars rætt við Gísla Martein Baldursson, fyrrverandi borgarfulltrúa, sem sagðist hafa verið með særindi í hálsi eftir að hafa gengið spölkorn í gær. Sagði Gísli Marteinn að það væri ekkert að því að banna nagladekk.
Sjá einnig: Gísli Marteinn með særindi í hálsi vegna svifryks – „Ekkert að því að banna nagladekk“
Egill gerir fréttina að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og bætir við að það sé svakalegt að heyra naglana spæna upp malbikið.
„Hvernig syngur í þeim þegar þeir tæta það upp. Og óhroðinn berst yfir bæinn. Illt að þurfa að vara sig á þessu þegar maður fer gangandi um bæinn. Veturinn bara rétt að byrja,“ segir hann. Margir tjá sig um málið undir færslunni, sumir benda á að svifryk muni ekki hverfa við það eitt að allir hætti að nota nagladekk.
„Það er furðuleg afneitun gagnvart þessu. Eins og sumir bíleigendur telji að sér vegið þegar bent er á þessar staðreyndir. Það er heldur enginn að segja að það séu nagladekkin ein sem valdi þessu, sitthvað annað kemur til, en mengunin frá nagladekkjunum er mjög skaðleg fyrir heilsuna. Ég ek bíl eins og annað fólk en hef ekki verið með nagladekk í mörg mörg ár.“