„Ég ætla að nefna það hér að skýrslan um Arnarholt kemur mér nákvæmlega ekkert á óvart,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason.
Egill skrifar á Facebook-síðu sína um málefni vistheimilisins Arnarholts en RÚV greindi í fyrrakvöld frá skelfilegri meðferð sem veikir einstaklingar á heimilinu máttu þola.
Dæmi voru um að einstaklingar sem þar dvöldu hafi verið settir í einangrun í litlum fangaklefa svo vikum skiptir. Um var að ræða steinsteyptan einangrunarklefa með járnrimlum og litlum glugga undir lofti. Þá lýsti starfsfólk órannsökuðum andlátum vistmanna og vanrækslu sem leiddi til andláts.
„Ég ólst upp í samfélagi þar sem var illa komið fram við fatlað fólk, geðsjúka, alkóhólista, konur sem sættu ofbeldi, börn sem stóðu höllum fæti, krakkana í tossabekkjunum, unglinga sem villtust út í óreglu og svo má halda áfram að telja,“ segir Egill og bætir við að sem betur fer hafi margt breyst.
„Öll þessi mál hafa tekið stakkaskiptum til hins betra. Það er einfaldlega meiri samúð og skilningur. Ég man eftir fötluðu fólki og geðsjúku sem var hætt og spottað af bæjarbúum í æsku minni.“