Egill efins um opnun landsins: „Þeir sem ég hitti í gærkvöldi og í morgun var brugðið“

Egill Helgason, sjónvarpsmaður og samfélagsrýnir, hefur ferðast víða um landið síðustu daga og segir hann að andrúmsloftið sé mjög sérstakt.

Egill skrifar færslu á Facebook vegna tveggja smitaðra einstaklinga frá Rúmeníu sem komu hingað til lands á dögunum. Mennirnir, sem voru alls sex talsins, áttu allir að fara í sóttkví en þeir virtu það að vettugi. Hann segir að þetta dæmi valdi miklum áhyggjum enda viti allir hversu sóttvarnir standa tæpt í því ástandi sem nú ríkir í heiminum.

„Það er til dæmis ekki hægt að reiða sig á að allir séu heiðarlegir. Ég hef ferðast víða um landið síðustu daga og það er mjög sérstakt andrúmsloft. Íslendingar að ferðast – fólk spjallar mikið saman og upplifir ákveðna frelsistilfinningu. En þeir sem ég hitti í gærkvöldi og í morgun var brugðið vegna Rúmenanna,“ segir Egill í færslu á Facebook.

Hann segir það hafi sé eins og þrengt hafi verið að frjálsræðinu og gleðinni. „Og ég hef ekki hitt einn einasta mann sem vill opna landamæri Íslands með þeim hætti sem stjórnvöld áforma. Ég heyri að fólk sem vinnur í ferðaþjónustu er óttaslegið - nú á það að vera í "framlínunni". Held að mikill meirihluti þjóðarinnar sé andsnúinn þessu. Ferðir hinna smituðu Rúmena hljómar eins og hvell vekjaraklukka.“