„Djöfull er þetta ógeðfellt. Vonandi fer ekki að renna upp sú tíð að íslenskir stjórnmálamenn þurfi lífverði,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason.
Eins og Hringbraut greindi frá í morgun rannsakar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvort skotvopn hafi verið notað til að vinna skemmdir á bifreið Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.
Málið er litið mjög alvarlegum augum og beinist rannsóknin meðal annars að því hvort málið tengist öðru máli þar sem skotið var á húsnæði Samfylkingarinnar í Sóltúni.
Egill er þeirrar skoðunar að hluti af vandamálinu sé hvernig fólk leyfir sér að tala um stjórnmálamenn á samskiptamiðlum. „Sumt af því er þess eðlis að manni sýnist varla langur vegur yfir í ofbeldi.“
Undir þetta tekur Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fyrrverandi borgarfulltrúi, í færslu á sinni Facebook-síðu.
„Með skotárásum á starfsstöðvar stjórnmálaflokka og bifreið borgarstjóra og fjölskyldu hans er endanlega ljóst að við verðum öll að staldra nú við og taka okkur taki í opinberri umræðu og því hvernig við tölum um hvert annað. Þetta mun annars enda með ósköpum,“ segir Björn Ingi.
Hann segir að viðbjóðurinn sem vellur um skólpleiðslur kommentakerfanna, hrakyrðin og hótanirnar séu daglegt brauð.
„Við höfum séð í Bandaríkjunum hvernig fer þegar öfgafólk stendur upp frá lyklaborðinu og lætur verkin tala. Sem opinber persóna til margra ára, þekki ég vel hvernig það er í lenda í þessari hakkavél. Að fá nafnlausar hótanir og níðpósta. Lesa ógeðsleg ummæli frá einhverju fólki sem þekkir mann ekki neitt og veit ekkert hvað það er að tala um. Íslenskir stjórnmálamenn hafa mátt þola þetta, jafnvel umsátur um heimili sín án þess að nokkuð væri aðhafst. Ekkert okkar á að sætta sig við þetta og við eigum ekki að umbera þetta sem samfélag. Hingað og ekki lengra,“ segir hann.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, gerir þó minna úr þessu en þeir Egill og Björn Ingi.
„Þetta er ekkert nýtt. Menn fá nafnlaus níð- og hótunarbréf, og skotið er í rúður hjá þeim og jafnvel veist að þeim á almannafæri. Það, sem er nýtt, er að hlaupa með þetta í fjölmiðla, en á því nærast ofbeldisseggirnir. Það á í kyrrþey að kippa þeim úr umferð.“