Egill: Þetta er fólkið sem vinnur mikilvægustu störfin - Launin ekki í neinu samræmi

„Kóvíd hefur kennt okkur hverjir vinna mikil­vægustu störfin,“ segir sjón­varps­maðurinn Egill Helga­son á Face­book-síðu sinni.

„Hjúkrunar­fræðingar, læknar, sjúkra­liðar, lög­reglu­þjónar, landa­mæra­verðir, starfs­fólk í verslunum, þeir sem sjá um flutninga og vöru­dreifingu, þeir sem fram­leiða nauð­synja­vöru, mat, lyf og fleira, þeir sem halda uppi sam­göngum, kennarar og leik­skóla­kennarar – og svo má telja á­fram,“ bætir hann við.

Egill er þeirrar skoðunar að þessir ein­staklingar, sem sinna þessum mikil­vægu störfum, eigi betra skilið.

„Launa­s­trúktúr sam­fé­lagsins er hins vegar ekki í neinu hlut­falli við mikil­vægið – eða má jafn­vel segja að hann sé í öfugu hlut­fall við það í afar mörgum til­vikum.“

Það er ó­hætt að segja að margir taki undir færslu Egils. Má þar nefna tón­listar­manninn Magnús Þór Sig­munds­son. Hann segir: „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, sá sem gerir við tölvuna mína fær marg­föld laun á við leik­skóla­kennara, hvort er meira virði tölvan mín eða barnið mitt?“

Þor­finnur Ómars­son leggur einnig orð í belg og segir Egil hafa gleymt einni starfs­stétt. „Þú gleymir þinni eigin starfs­stétt, sem skiptir líka sköpum á þessum tímum. En þar eru reyndar ekki greidd laun í takt við mikil­vægið.“