Egill birtir mynd og óttast aðra bylgju: „Þetta eru flug sem eru væntan­leg til Ís­lands á morgun“

„Smit­tíðnin hér er enn­þá of há. Þetta eru flug sem eru væntan­leg til Ís­lands á morgun. Öll frá löndum þar sem pestin geisar ákaft,“ segir fjöl­miðla­maðurinn Egill Helga­son á Face­book-síðu sinni.

Egill hefur talað nokkuð ákaft fyrir ströngum sótt­varna­að­gerðum hér­lendis til að hefta út­breiðslu CO­VID-19.

Eins og greint var frá í morgun greindust 10 smit á landa­mærunum í gær en tekið skal fram að beðið er niður­stöðu mót­efna­mælinga úr átta þeirra. Þá var greint frá því að tólf smit hefðu greinst innan­lands. Ljóst er að við erum á við­kvæmum tíma­punkti og lítið má út af bregða til að veiran komist á flug á nýjan leik.

Egill bendir á að sjö flug­vélar séu væntan­legar til landsins á morgun, frá Var­sjá, Stokk­hólmi, Kaup­manna­höfn, Amsterdam, Riga, Gdansk og Katowice. Eins og sést eru þrjár þessara véla frá Pól­landi en þar eru rúm­lega 270 þúsund manns með virkt smit.

Eins og Egill bendir rétti­lega á hefur tíðnin einnig farið vaxandi í Sví­þjóð og Dan­mörku á undan­förnum vikum. „Við verðum að gæta okkar mjög vel og treysta á að sótt­varnirnar við landa­mærin haldi. Annars er ó­hjá­kvæmi­legt að hér kemur ný bylgja um há­tíðirnar,“ segir Egill og er aug­ljós­lega á­hyggju­fullur.

Þór Saari, fyrr­verandi þing­maður, leggur orð í belg undir færslu Egils og tekur undir á­hyggjur hans. „Þessi flug fyrir jólin eru dauða­dómur yfir sótt­vörnum vegna 14 daga undan­þágunnar og verða lík­lega dauða­dómur yfir ein­hverju sak­lausu fólki líka. Alveg stór­furðu­legt að heil­brigðis­ráð­herra skuli ekki fara að til­mælum sótt­varnara­læknis í miðjum heims­far­aldri.“

Smittíðnin hér er ennþá of há. Þetta eru flug sem eru væntanleg til Íslands á morgun. Öll frá löndum þar sem pestin...

Posted by Egill Helgason on Föstudagur, 11. desember 2020