„Sumt skil ég ekki,“ segir fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason í færslu á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur talsverða athygli.
Með færslunni birti Egill gamla mynd af Tjörninni í Reykjavík þar sem sjá má tugi, ef ekki hundruð, ungmenna renna sér á skautum. Óvíst er hvenær myndin er tekin en ljóst má vera að hún er gömul.
Egill veltir fyrir sér hvers vegna ekki er búið að gera skautasvell þarna miðsvæðis, á besta stað í Reykjavík í því frosti sem verið hefur undanfarinn mánuð eða svo.
„Sumt skil ég ekki. Eins og að ekki skuli vera búið að fara með sköfu og búa til skautasvell á Tjörninni eftir langvarandi froststillur. Er þetta þó beint fyrir framan Ráðhúsið og borgarfulltrúana. Þar sem Ráðhúsið stendur var meira að segja hús þar sem maður reimdi á sig skautana í eina tíð.“
Margir hafa skrifað athugasemd við færslu Egils og taka margir undir með honum. „Ein af mínum bestu æskuminningum að skauta á Tjörninni og stundum sáum við norðurljósin,“ segir ein kona á besta aldri.