Egill ætlar ekki að flytja úr miðbænum: „Þessi samtök tala ekki fyrir mína hönd“

Egill Helgason, segir hóp fólks í miðbænum sem kvartar yfir hávaða ekki tala fyrir sína hönd.

Í gær greindu fjölmiðlar frá því að Í­búa­sam­tök Mið­borgar Reykja­víkur hefðu staðið fyrir málþinginu: „Hvernig gengur sam­býlið við nætur­lífið?“

„Ís­lendingar geta ekki skemmt sér nema æpa hver á annan, þau tala ekki saman eins og aðra þjóðir. Þannig það getur verið mikill há­vaði af fólkinu úti,“ sagði Benóný Ægis­son, einn þessara íbúa við Fréttablaðið.

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er á öðru máli.

„Ég bý í Miðbænum, ætla ekki að flytja þaðan, segi alveg eins og er - þessi samtök tala ekki fyrir mína hönd.“ skrifar hann á Facebook.

Margir taka undir með Agli, eins og varaþingmaðurinn og rithöfundurinn, Guðmundur Andri Thorsson.

„Amma á Akureyri bjó við Ráðhústorgið þar sem var alltaf hávaði, ekki síst um helgar þegar Sjallinn hafði lokað, og alveg séstaklega var glatt á hjalla þegar Örlygur var í bænum. Þegar hún kom til okkar í Karfavoginn gat hún ekkert sofið fyrir þögninni.“