Líkt og farið hefur ekki fram hjá neinum sem farið hefur um Lækjargötuna í Reykjavík hafa framkvæmdir staðið yfir í mörg ár við hótel þar. Af þeim sökum hefur hluti götunnar verið lokaður og eru margir orðnir langþreyttir á ástandinu.
Einn þeirra er fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason og ljáir hann máls á ástandinu á Facebook og spyr: „Hálf Lækjargatan lokuð ár eftir ár. En líklega mjög þægileg bílastæði. Hvað kostar að fá svona viðurgjörning hjá borginni?“
Margir taka undir með honum í ummælum við færsluna, meðal annars Stefán Pálsson sagnfræðingur. „Það er búið að vera móð ólíkindum hvað verktakinn hefur fengið að breiða úr sér þarna og ekkert sem bendir til þess að hann geri neitt til að lágmarka tímann sem þurft hefur að loka. Ég trúi ekki öðru en að einhver lærdómur verði dreginn innan borgarkerfisins af þessari uppákomu.“
„ Ég er feginn að þeir skuli klára þetta verk í kóvíðinu og útkoman er skárri en manni sýndist í byrjun - en þessi götulokun er orðin fáránleg“, bætir Egill við.