Eggert Skúla­son: „Senni­lega var það skot­leyfi gefið út þegar daginn sem ég gerðist rit­stjóri“

Eggert Skúla­son, fjöl­miðla­maður og fyrr­verandi rit­stjóri DV, segist vona að nú séum við stödd á kross­götum. Það of­beldi og hótanir sem ís­lenskir stjórn­mála­menn hafi búið við sé ó­boð­legt.

„Skot­á­rásir og líf­láts­hótanir. Sú á­kvörðun að þegja yfir þessu var klár mis­tök. Sam­fé­lagið þarf að verja sig og það gerist ekki með þögninni. Þekki þetta á eigin skinni,“ segir Eggert í færslu á Face­book-síðu sinni.

„Þann tíma sem ég var rit­stjóri DV fékk ég margs konar hótanir um hvernig ætti drepa mig og þá sem stóðu mér næst.“

Eggert var sem kunnugt er ráðinn rit­stjóri DV í lok árs 2014 eftir mikið fjaðra­fok innan fyrir­tækisins. Hann segir í færslu sinni að senni­lega hafi skot­leyfi verið gefið út daginn sem hann gerðist rit­stjóri.

„Bæði RÚV og Stöð 2 sáu á­stæðu til þess að spyrja mig hvort ég væri fram­sóknar­maður. Man ekki eftir að aðrir sem tóku við sam­bæri­legum stöðum hafi þurft að svara slíkum spurningum,“ segir hann og bætir við í at­huga­semd undir færslunni að hann sé að vísu skráður í Sjálf­stæðis­flokkinn.

„Ég legg til að stjórn­mála­menn - kjörnir full­trúar byrji á því að taka til í eigin garði og vandi um­ræðuna og þar með slái ekki þann tón að stjórn­leysi og öfgar líðist í okkar um­ræðu.“

Hannes Hólm­steinn Gissurar­son, prófessor í stjórn­mála­fræði við Há­skóla Ís­lands, leggur orð í belg og segir: „Nei, ég held ekki, að það séu mis­tök að segja ekki frá þessu. Reynsla lög­reglunnar í öllum löndum er, að fólk, sem er tæpt á geðs­munum, fær alls konar hug­myndir við slíkan frétta­flutning.“

Eggert svarar á móti að það geti vel verið en á ein­hverjum tíma­punkti verði að hafa í huga að hótanir af þessu tagi eru lög­brot. „Það má ekki við­gangast að fólk komist upp með þetta. Sumir segja skilum skömminni. Kannski er kominn tími á að skila hræðslunni. Svona hótanir skemma fólk og valda hræðslu.“