„Undanfarna 3 mánuði hef ég reynt að koma því á prent, svona í vitrænu samhengi, sem gengur á í kollinum á mér. En nú gefst ég upp.“
Svona hefst færsla frá Eggert Eyjólfssyni, nú fyrrverandi bráðalækni á bráðamóttöku Landspítalans, sem birtist í gær. Eggert sagði upp störfum á bráðamóttöku Landspítalans í lok september og vann sína síðustu vakt í lok desembermánaðar.
„Það vita allir sem vilja vita hvers vegna. Ég ákvað að setja sjálfan mig og fjölskylduna í fyrsta sætið - kominn tími til. Vonandi breytist eitthvað til hins betra innan veggja spítalans svo fólki verði gert kleift að starfa þar við ásættanlegar kringumstæður. Það er engum hollt að starfa í því umhverfi sem fólki er þar búið og því síður að sækja þangað þjónustu.“
Eggert fer ekki ofan af því að á bráðamóttöku Landspítala starfar gríðarlega duglegt, ósérhlífið og fært fólk í öllum stöðum. Umræðan um stöðuna á Landspítalanum og einkum og sér í lagi bráðamóttökuna hefur verið fyrirferðarmikil undanfarin misseri en þrátt fyrir það virðist lítið breytast til hins betra.
„Vanvirðingin sem þessu fólki er sýnd af hálfu yfirvalda og á stundum stjórnenda Landspítala er ólýsanleg og ég gat ekki meir,“ segir Eggert í færslu sinni og bætir við:
„Ég mun sakna þess að vinna við það fag sem ég valdi mér sem ævistarf og hef þjálfað mig til að sinna undanfarin 15 ár. EN fjölskyldan mín fyrst og fremst, en líka líkamleg og andleg heilsa er mér mikilvægari. Ég vona innilega að stjórnvöldum og stjórnendum LSH takist að snúa dæminu við, en leyfi mér að vera svartsýnn.“
RÚV ræddi í morgun við formann Félags sjúkrahúslækna sem sagði allmörg dæmi um að sérfræðimenntað starfsfólk hafi hætt störfum á bráðamóttöku Landspítalans síðustu misseri.
„Þetta eru skörð sem er mjög erfitt að fylla upp í. Bæði hvað varðar bráðalæknana og hjúkrunarfræðingana. Mikil reynsla sem hverfur þarna. Þannig þetta er gríðarleg blóðtaka fyrir starfsemi bráðamóttökunnar,“ sagði formaður félagsins, Theódór Skúli Sigurðsson.