„Ég var léleg fyllibytta“ - Þorgeir Ástvalds í Mannamáli

Þorgeir Ástvaldsson, útvarpsmaður, tónlistarmaður og skemmtikraftur - og Dalamaður af bestu sort er gestur í Mannamáli hjá Sigmundi Erni í kvöld, fimmtudag. Þorgeir sem stundum var bara kallaður „Toggi í Tempó“ og sem gengur eiginlega ekki í neinum öðrum fótabúnaði en klossum er ein kunnasta útvarpsrödd landsmanna.

Í spjalli við Sigmund Erni segir Þorgeir frá samstarfinu í hinni víðfrægu Sumargleði, hljómsveitarstússinu með Tempó, vinskapinn við Ragga Bjarna og byltingarkenndar breytingar í fjölmiðlum, það er útvarpi sem Þorgeir var ekki síst megin frumkvöðullinn að baki og ber stofnun Rásar tvö þar hæst.

Þorgeir sem nýverið fagnaði sjötugs afmælinu segir Sigmundi Erni einnig frá því þegar áfengisdrykkja var farin að marka líf hans á slæman veg, hvaða afleiðingar það hafði og líkt og hans gamli vinur, Raggi Bjarna segist hann hafa við „léleg fyllibytta“. Ólíkt Ragga lét hann það þó ekki eiga sig nema síður væri og atvik eins og þegar Þorgeir gleymdi að sækja barnungan son sinn úr pössun gleymist honum ekki og ekki heldur þegar hann gleymdi viðmælanda sínum í biðstofu útvarpsstöðvarinnar Stjörnunnar eftir Tekíla fylleri kvöldið áður.

Áfengið vann á feimninni þegar Þorgeir var undir áhrifum var allt auðveldara en með árunum þreyttist hann að eigin sögn. „Það var náttúrulega konan mín sem að sagði mér á hvaða leið ég væri“.