„Ég spyr svo að lokum, hver vill nú skipta um flokka í ríkis­­stjórn?“

Guðni Ágústs­son, fyrr­verandi land­búnaðar­ráð­herra og for­maður Fram­sóknar, segir Fram­sókn vera límið í ríkis­stjórnar­sam­starfinu og sam­fé­laginu. Flokkurinn eigi vin­sælustu ráð­herrana.

Þetta segir Guðni í pistli sem birtist í Frétta­blaðinu í dag. Þar tekur Guðni undir orð Sig­mundar Ernis Rúnars­sonar, sjón­varps­stjóra Hring­brautar um að Fram­sókn sé límið. Enginn flokkur hafi staðið betur af sér klofning á síðustu árum í stjórn­mála­sögu Ís­lands.

Guðni rifjar upp að Fram­sókn hafi fjórum sinnum gengið í gegnum al­var­legan klofning. „Fyrst klofnaði hann um Jónas Jóns­­son frá Hriflu og Tryggva Þór­halls­­son, og síðan aftur um Jónas frá Hrif lu þegar hann var felldur frá for­­mennsku og Her­mann Jónas­­son tók við. Aftur klofnaði hann um Ólaf Ragnar Gríms­­son og Möðru­valla­hreyfinguna 1974 og nú síðast um Sig­­mund Davíð Gunn­laugs­­son 2017,“ skrifar Guðni og heldur á­fram:

„Allt voru þetta þung högg og spá­­dómar gengu út á að Fram­­sókn myndi seint bera sitt barr. En flokkur sem stendur fast á grund­vallar­­stefnu sinni að hin gullna regla sé vin­áttan rís alltaf aftur: „Hlustaðu á aðra á sama hátt og þú vilt að aðrir hlusti á þig.“

Vin­sælustu ráð­herrarnir

Guðni segir það blasa við að flokkurinn geti náð sínum fyrri styrk í kosningunum í haust. Flokkurinn hafi náð mikilli sam­stöðu um fram­boðs­lista sína.

„Verk þeirra Sigurðar, Lilju Daggar og Ás­­mundar Einars hafa verið sett á mæli­vog á­­nægjunnar í Capacent og eru þau öll í hópi þeirra fimm ráð­herra sem mest á­­nægja er með. Mælast í öðru, þriðja og fimmta sæti vin­­sældanna. Ég spyr svo að lokum, hver vill nú skipta um flokka í ríkis­­stjórn? Ekki ég, ekki Sig­­mundur afi, ekki unga fólkið og skyn­­semin segir Fram­­sókn er límið, flokkurinn sem horfir beint fram. Við Ís­­lendingar erum með landið okkar í ein­stakri stöðu, þar á Fram­­sókn stóran þátt. Ís­land á að vera grænt á­­fram.“

Pistill Guðna í Frétta­blaðinu.