„Ég mæli ekki með þessu við neinn“

„Ég mæli ekki með þessu við neinn,“ segir Víðir Reynis­son, yfir­lög­reglu­þjónn um CO­VID-19 veikindi sín. Hann var spurður að því á blaða­manna­fundi al­manna­varna hvort hann væri enn að jafna sig og sagði svo vera.

Víðir segir að hann hafi ekki enn fengið bragð- og lyktar­skyn aftur. Þá sagðist hann einnig glíma við þreytu sem er meðal al­gengustu eftir­kasta sjúk­dómsins.

Líkt og al­þjóð veit greindist Víðir með Co­vid-19 í lok nóvember á síðasta ári eftir að smit kom upp í nær­um­hverfi hans. Hans nánasta sam­starfs­fólk auk Ölmu Möller, land­læknis og Þór­ólfs Guðna­sonar, sótt­varna­læknis fóru í sótt­kví og í sýna­töku. Sýni þeirra allra reyndust nei­kvæð.

Um tveimur vikum eftir að Víðir smitaðist kom í ljós að hann væri komin með lungna­bólgu. Hundruð Ís­lendinga þjást enn af eftir­köstum.