„Ég held að þetta sé algerlega búið spil með þetta saklaus uns sekt sannast í okkar samfélagi og við þurfum að fara að endurhugsa það allt frá grunni.“
Þetta segir Jakob Bjarnar, blaðamaður Vísis, en nokkuð ljóst er að þar ræðir hann ákvörðun Hagkaupa og birgja um að taka markaðsefni með Gylfa Þór Sigurðssyni, knattspyrnumanni, niður. Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu.
„Ekki þarf annað en kvitt á Twitt og þá rjúka fyrirtæki og stofnanir til og setja viðkomandi í hvers kyns straff með ófyrirséðum afleiðingum. Þar til annað kemur í ljós?! (Vel að merkja og það ætti auðvitað ekki að þurfa að taka það fram, að ég er vitaskuld ekki að taka neina afstöðu til sannleiksgildis orðróms og ólíkra ásakana því um það get ég auðvitað ekkert vitað frekar en flestir,)“ skrifar Jakob.
„Ég veit ekki hver ábyrgð þeirra er sem hlaupa til en um það má spyrja því víst er að þau fyrirbæri eru með því að ausa olíu á þá elda sem loga glatt hjá dómstóli götunnar, því þetta er auðvitað ekkert annað hvað svo sem Gunnar Ingi sá ágæti lögmaður segir.“
Segir dómstól götunnar ekki til
Þó nokkrir leggja orð í belg, þar á meðal Lára Ómarsdóttir og Illugi Jökulsson. „Það hefur aldrei verið til neitt sem heitir í alvöru „saklaus uns sekt er sönnuð“ meðal fólks. Fólk hefur frá örófi dæmt eða haft skoðun á öðru fólki og talað um það sín á milli. Það er ekki til neinn eiginlegur „dómstóll götunnar“ í raun hefur fólk líka alla tíð byggt á tilfinningum og skoðunum sínum á öðru fólki og dæmt það,“ segir Lára.
„Það eina sem hefur breyst er að nú heyrast raddirnar víðar og fleiri raddir heyrast í einu en áður. Hér í den tíð hvíslaðist fólk á og jafnvel hafði hátt og reifst í kaffiboðum og þá eins og nú ákváðu sum fyrirtæki eða sumt fólk að taka afstöðu strax. Annað fólk og önnur fyrirtæki biðu átekta.“
Jakob svarar Láru þá og bendir á að dagskrárgerðarmaður Rásar 2 hafi neitað að spila lög með Ingó Veðurguð um helgina. „Það er refsing sem byggir á dómi dómstóls götunnar. Prinsippin í málinu breytast ekki þó einhverjum finnist þetta skíterí og tónlistin sem slík ekki við einhverra skap.“
Illugi leggur einnig orð í belg og segir: „Dómstóll götunnar“ er ekki góður frasi nema í umræðum mjög af léttara taginu. Í sögulegu ljósi, þá VITUM VIÐ um illvirki ótölulegs grúa af fólki sem ekki hefur þó verið dæmt fyrir neinum dómstóli. Það hefur aldrei verið sannað fyrir rétti að Rómarkeisarar hafi (svo ég taki mér nærtækt dæmi) níðst á hinum eða þessum á þennan eða hinn háttinn. Samt slá hinir virðulegustu sagnfræðingar því föstu.“