„Ég græt þessa mann­vonsku og miskunnar­leysi. Hvílík grimmd og hvílíkur dauð­dagi“

„Ein­hver hræði­leg manneskja virðist vera að eitra fyrir vesa­lings kanínunum í Elliða­ár­dal. Í gær­kvöldi fundust margar dauðar og hörmungin heldur á­fram í dag; þær kveljast hræði­lega og deyja.“

Þetta segir kona að nafni Helga á Face­book-síðu sinni en hún hefur á­samt öðrum gefið dýrunum skipu­lega yfir vetrar­tímann síðustu ár. Hún kveðst viss um að vægðar­laus hrotti hafi verið á ferð í Elliðar­ár­dal og hafi drepið tugi kanína á svæðinu. Mat­væla­stofnun hefur borist fjölda á­bendinga og er með málið til skoðunar. Í gær voru 36 hræ hirt í dalnum og 15 í dag, alls rúm­lega 50. Hafa hræin verið send til krufningar til að kanna hvort um sé að ræða sjúk­dóm eða eitrun. Helga segir:

„Ég er búin að gefa þessum greyjum í mörg ár og græt þessa mann­vonsku og miskunnar­leysi. Hvílík grimmd og hvílíkur dauð­dagi fyrir þær blessaðar sem hafa lifað af þennan harða vetur og betri tíð hefði átt að bíða þeirra á næsta leiti.“

Hefur því verið kastað fram að mögu­lega hafi kanínurnar drepist úr hungri. Það telur Helga frá­leitt. Hún segir að einu sinni á dag fari einn úr hópnum, hvernig sem viðrar og gefi dýrunum. Það séu um 70 kanínur sem þiggi fæði frá hópnum. Um helgar og á góð­viðris­dögum gerir fjöl­skyldu­fólk sér oft ferð í dalinn og gefi dýrunum að éta. Helga segir:

„Við höfum farið með sjáan­lega veik eða slösuð dýr til dýra­læknis og líka fundið heimili fyrir tvö. Þetta er á­reiðan­lega eitrun, því það stenst ekki að skyndi­lega deyi hópur þeirra í einu. Sár­soltnir hrafnar, sem eru þarna í stórum stíl, hafa svo lík­lega ætlað að nota sér veik og deyjandi dýrin og kroppað í þau. Það hefur ekki verið góður biti.“