„Ég gat nú bara 90 kíló“

Stálkona Íslands, Veiga Dís Hansdóttir segir enn meiri áskorun í því að keppa um titilinn Sterkasta kona Íslands en sú keppni verður haldin um helgina.

Veiga Dís ræddi við Lindu Blöndal í þættinum 21 um hvað krefði hana áfram og hvað þyrfti til að hljóta titla eins og þessa.

Veiga Dís, sem er húsasmiður og smíðakennari í grunnskóla Varmárskóla segist hafa byrjað æfingar með bræðrum sínum en langan tíma tók þar til hún tók aflraunakeppnum alvarlega. Og núna er þetta mesta ástríðan.

„Það er rosaleg misjafn eftir mótum hvaða greinar eru. Á mótinu í Stálkonunni þá tókum við Bóndagöngu þar sem haldið er á stórum járnklumpum og gengið eins hratt og hægt er. Einnig Sirkuslóð, sem eru stór lóð, stærra en mannshöfuð, sem maður heldur bara uppi með annarri hendi og tekur upp og niður frá jörðinni, eins oft og maður getur á mínútu. Og svo er það réttstöðulyfta sem ég held að allir kannist við, svo hlupum við með þungar hellur og síðasta greinin var Atlas steinar. Það eru svona stórir gúmmísteinar sem maður lyftir upp á pall.

Léttasti Atlas steinninn var 60 kg, annar 90 kg og þyngsti 110 kg. Hvað náði hún miklu?

"Bara um 90 kílóum", segir Veiga Dís brosandi.

Veiga Dís keppir um helgina um titilinn Sterkasta kona Íslands. Níu konur eru skráðar. Hún segir: „Það er rosalega mikið. Ég var einmitt að vinna á Sterkasta manni Íslands um síðustu helgi og það voru ekki nema sjö keppendur, þannig að við stelpurnar erum fleiri en karlarnir“.

Um áhugann á aflraunakeppnum í dag segir Veiga Dís: „Ég myndi klárlega segja að hann væri vaxandi“

Mótið um Sterkustu konu Íslands fer frá á laugardaginn 15.ágúst á Akureyri.