„Ég er dauð­hrædd við að falla“

„Ég byrja að stela af Visa kortinu hans, brjóta upp baukana hjá börnunum mínum og fór bara í alla vasa inni í húsinu. Ég bara varð að fá pening.“

Þetta segir Karítas Vals­dóttir í við­tali í Ís­landi í dag á Stöð 2 en Karítas er þriggja barna móðir sem er for­fallinn spila­fíkill sem misst hefur frá sér allt vegna fíknarinnar.

Í við­talinu í Ís­land í dag lýsir hún því hvernig hún fór fyrst í spila­kassa úti í sjoppu þegar hún var einungis um tíu ára gömul. „Margir af krökkunum sem voru með mér í skóla tóku eftir þessu og byrjuðu að kalla mig spila­fíkil og mér fannst það rosa­lega sárt og erfitt,“ segir Karítas í Ís­landi í dag á Stöð 2 í gær­kvöldi.

Karítas flutti til Banda­ríkjanna eftir tíunda bekk. Þar lýsir Karítas því hvernig hún gat ekki komist í gegnum heilan dag án þess að spila og stal hún peningum úr sjálf­sölum. Hún var á endanum send aftur til Ís­lands, þar flutti hún til ömmu sinnar, hóf að vinna og flutti inn til stráks.

„Ég varð mjög fljótt ó­létt og var ég búin að á­kveða það að ég myndi ekki spila þegar barnið kæmi. En á­kvað að spila nægi­lega mikið þangað til og nota tímann. Þá vorum við bæði að spila. Við missum í­búðina og ég fæ að vera í bíl­skúrnum hjá frænku minni. Ég var þarna kas­ó­létt og svaf á dýnu í bíl­skúrnum og í rauninni hefðum við alveg geta leigt, en þá hefðum við ekki getað spilað og við lögðum þetta á okkur til þess.“

Hún skildi við barns­föður sinn og flutti til pabba síns að nýju með korna­barn. Hún kynntist nýjum manni og lýsir því hvernig hún hafi horfið og skilið strák sinn eftir með manninum. „Ég hvarf í ein­hvern tíma og fór að spila. Svo kem ég aftur og hann var bara í sjokki. Þarna viður­kenni ég fyrir honum að ég væri spila­fíkill,“ segir Karítas

Hún fór í með­ferð á Vogi fyrir tæpum fjórum árum og er á góðum stað í dag. „Ég er dauð­hrædd við að falla en eins og mér líður núna er það ekki inni í myndinni.“

Horfa má á við­talið við Karítas í Ís­land í dag frá því í gær­kvöldi hér.