„Ég á­kvað bara að reyna að enda líf mitt“

Fórnar­lamb Guð­mundar Ellerts Björns­sonar, sem var á mið­viku­daginn dæmdur í fimm ára fangelsi í Lands­rétti fyrir kyn­ferðis­brot gegn börnum, sagðist í kvöld­fréttum Stöðvar 2 hafa upp­lifað mikla reiði og depurð eftir að Guð­mundur var fyrst sýknaður í héraði árið 2018.

Ungi maðurinn vill ekki koma fram undir nafni en hann greinir frá því að hann hafi verið dapur og reiður eftir niður­stöðu héraðs­dóms. „Stuttu eftir þessa niður­stöðu þá var ég búin að á­kveða mig að lífið væri búið. Hann fær bara að komast upp við þetta. Kerfið ætlar ekki að gera neitt í þessu og mér leið bara eins og enginn trúi því sem ég væri að segja þannig ég á­kvað bara að reyna að enda líf mitt,“ sagði maðurinn í kvöld­fréttum Stöðvar 2.

Guð­mundur starfaði sem stuðnings­full­trúi hjá Barna­vernd þegar hann var hand­tekinn en brotin náðu aftur til ársins 1998. Brotin gegn unga manninum voru mjög gróf og stóðu yfir frá átta til fjór­tán ára aldurs.

Hefði verið hægt að koma í veg fyrir frekari brot

Málið vakti mikla at­hygli á sínum tíma en lög­regla viður­kenndi að mis­tök hafi verið gerð í málinu þar sem ekki var brugðist við strax og fyrsta á­kæran barst. Þá kom einnig í ljós að Reykja­víkur­borg hafi fengið upp­lýsingar um brot mannsins árið 2008 en barna­vernd hafi ekki verið til­kynnt um á­bendinguna.

Greint var frá því í kvöld­fréttum RÚV í gær að maðurinn sem Guð­mundur braut gegn kæmi til með að krefjast bóta vegna mis­takanna en Sæ­var Þór Jóns­son, lög­maður mannsins, sagði að um erfiða bar­áttu fyrir rétt­læti hafi verið að ræða.

Hann hafi fundið fyrir létti að Lands­réttur hafi á­kveðið að sak­fella Guð­mund en á sama tíma finni hann enn fyrir reiði þegar hann hugsar til þess að hægt hafi verið að koma í veg fyrir frekari brot.

„Mér leið vel en á sama tíma var þetta draum­kennt, erfitt að trúa þessu.“