Guðlaugur Þór Einarsson í rataði í fjölmiðla í nóvember í fyrra þegar myndband af honum að ráðast á annan mann var deilt á netinu. Í kjölfarið fóru ýmis myndbönd sem sýndu ofbeldi og slagsmál í dreifingu á samfélagsmiðlum. Bensínsprengjum var kastað í að minnsta kosti tvær íbúðir og hótanir flugu á víxl á opinberum vettvangi.
Guðlaugur var lengi vel einn fremsti bardagakappi landsins í bardagaíþróttinni MMA. Hann keppti sinn fyrsta bardaga á erlendri grundu 25 ára. Tveimur árum seinna missti hann hins vegar tökin á eigin lífi og leiddist út í neyslu. Eftir átökin í nóvember var Guðlaugur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald en þar inni ákvað hann að breyta lífi sínu. Hann hefur núna verið í edrú í sex mánuði og segist ætla einbeita sér að íþróttinni.
„Ég ætla ekki að láta þessa röngu beygju skilgreina mig og er gífurlega þakklátur fyrir að fá tækifæri til að byrja að æfa MMA aftur og hlakka til að elta draumana mína þar á nýjan leik,“ segir Guðlaugur í viðtali hjá Fréttablaðinuí gær.
Guðlaugur á að baki fjóra bardaga erlendis en hann byrjaði að keppa á erlendri grundu 25 ára. „Bardagarnir úti urðu svo fjórir áður en ég tók ranga beygju og leiddist út í neyslu um 27 ára,“ segir Guðlaugur..
„Þá fór að halla undan fæti hjá mér og hægt og rólega missti ég stjórnina á mínu eigin lífi og hætti að æfa. Ákveðinn aðdragandi verður svo til þess að ég enda í gæsluvarðhaldi,“ bætir hann .
„Þar fékk ég tækifæri til að hugsa minn gang og endurmeta ýmsa hluti og ýmis gildismöt. Ég fékk að sjá þar svart á hvítu hvert ég stefndi og hvernig þetta gæti allt saman endað ef ég tæki mig ekki á. Á þessum tímapunkti vissi ég að ég þyrfti að taka ákvörðun sem ég og gerði.“
„Ég ákvað því að gefa allt mitt í það að snúa við blaðinu. Fór í kjölfarið í meðferð á Vog og Vík og hef núna verið edrú í að verða hálft ár,“ segir Guðlaugur.
Hægt er að lesa viðtalið við Guðlaughér.