Eflingarfólk samþykkir fleiri verkföll – hefjast í hádeginu á þriðjudaginn í næstu viku

Félagsmenn Eflingar hafa samþykkt verkfallsboðanir í öryggisgæslu, hjá ræstingarfyrirtækjum og á hótelum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eflingu nú í kvöld.

Alls voru 711 á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni um verkfallsboðun á hótelum. Þar af greiddu 288 atkvæði með, 76 á móti og 17 tóku ekki afstöðu. Verkfall var því samþykkt með tæplega 76% atkvæða. Kjörsókn var tæp 54%.

Hjá öryggisvörðum voru 414 á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni. Þar af greiddu 130 atkvæði með, 59 á móti og 13 tóku ekki afstöðu. Verkfall var því samþykkt með rúmlega 64% atkvæða. Kjörsókn var tæplega 49%.

Hjá ræstingarfyrritækjum voru 909 voru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni. Þar af greiddu 289 atkvæði með, 40 á móti og 20 skiluðu auðu. Verkfall var því samþykkt með tæplega 83% atkvæða. Kjörsókn var rúmlega 38%.

Í fréttatilkynningunni segir að samninganefnd lagði boðanirnar þrjár í dóm félagsfólks með auglýsingu þann 13. febrúar síðastliðinn. Um er að ræða ótímabundnar vinnustöðvanir sem allar hefjast klukkan 12:00 á hádegi þriðjudaginn 28. febrúar.