Perla Ösp Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Eflingar, en stjórn félagsins samþykkti ráðningu hennar í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu, en þar segir að Perla eigi 11 ára feril að baki sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Landsbankanum. Þar áður hafi hún starfað sem greinandi hjá Seðlabankanum og gegnt samhliða störfum fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis sem rannsakaði orsakir fjármálahrunsins 2008. Perla lét af störfum hjá Landsbankanum í maí 2021.
Þá kemur fram að Perla sé með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík.
Perla mun hefja störf hjá Eflingu þann 1. júní næstkomandi. Fram kemur að verkefnin sem bíða hennar varð stefnumótun og eftirfylgni í tengslum við skipulagsbreytingar sem Efling hóf í apríl síðastliðnum.
„Ég lýsi mikilli ánægju með þessa ráðningu. Við leituðum að framkvæmdastjóra sem getur ábyrgst góða stjórnarhætti, leitt vandaða áætlunargerð um reksturinn og átt gott samstarf við stjórn og starfsmenn. Það er ljóst að Perla Ösp hefur afburða færni og reynslu í þessum atriðum,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar.
„Ég þakka það traust sem mér er sýnt gagnvart því mikilvæga verkefni að taka við skrifstofu Eflingar - stéttarfélags eftir róstusama tíma. Það eru mörg verðug verkefni sem bíða mín og þess teymis sem mun manna skrifstofuna. Ég treysti því að þekking mín og reynsla frá Landsbankanum muni styrkja Eflingu og hlakka til farsælla samskipta við stjórn og samstarfsfólk,“ er síðan haft eftir Perlu Ösp.